Max Pemberton RE-278 (+1944)

Eitt mesta mannfall á Íslandi árið 1944 varð þegar togarinn Max Pemberton RE 278 „Maxinn“ fórst með allri áhöfn þann 11. janúar 1944.

Um borð í togaranum voru 29 manns. Skipsflakið hefur aldrei fundist.

Kort sem sýnir staðsetningu á Malarrifi á suðurhluta Snæfellsnes. (Loftmynd: Loftmyndir.is)
Max Pemberton RE-278

Áhöfnin hafði verið við veiðar suður af Malarrifi, Snæfellsnesi. Vont veður var á ofangreindum tíma og talið er að hann hafi ofhlaðinn og yfirvigt því ástæða hvarfsins. Þess ber þó að geta að á þessum tíma stóð seinni heimstyrjöldin yfir og vitað var að þýskir kafbátar voru á ferli á Faxaflóa. En þar sem skipsflakið hefur aldrei fundist þá er ómögulegt að segja hver ástæðan er fyrir hvarfi togarans.

Heilmikið skarð var skorið í íslenskt samfélag á þessum árum en fleiri skipsskaðar voru fleiri á árinu 1944.

Max Pemberton RE 278 1939-1941 (Heimild: Sarpur / Þjóðminjasafn Íslands)

Þeir sem fórust með skipinu voru (29 manns):

Pétur A. Maack skipstjóri, Reykjavík, 51 árs,
 Pétur A. Maack, 1. stýrimaður, Reykjavík, 28 ára,
 Jón Sigurgeirsson, 2. stýrimaður, Reykjavík, 31 árs,
 Þorsteinn Þórðarson, 1. vélstjóri, Reykjavík, 51 árs,
 Þórður Þorsteinsson, 2. vélstjóri, Reykjavík, 19 ára,
 Valdimar Guðjónsson matsveinn, Reykjavík, 46 ára,
 Gísli Eiríksson bátsmaður, Reykjavík, 49 ára,
 Guðmundur Þorvaldsson bræðslumaður, Hafnarfirði, 44 ára,
 Guðmundur Einarsson netamaður, Reykjavík, 45 ára,
 Guðni Kr. Sigurðsson netamaður, Reykjavík, 50 ára,
 Sigurður V. Pálmason netamaður, Reykjavík, 49 ára,
 Sæmundur Halldórsson netamaður, Reykjavík, 33 ára,
 Aðalsteinn Árnason háseti, Seyðisfirði, 19 ára,
 Ari Friðriksson háseti, Látrum, Aðalvík, 19 ára,
 Arnór Sigmundsson háseti, Reykjavík, 52 ára,
 Björgvin H. Björnsson háseti, Reykjavík, 28 ára,
 Guðjón Björnsson háseti, Reykjavík, 17 ára,
 Gunnlaugur Guðmundsson háseti, Reykjavík, 26 ára,
 Halldór Sigurðsson háseti, Jaðarkoti í Villingaholtshreppi, Árnessýslu, 23 áraHlöðver Ólafsson háseti, Reykjavík, 22 ára,
Jens Konráðsson háseti, Reykjavík, 26 ára,
Jón Þ. Hafliðason háseti, Reykjavík, 28 ára,
Jón M. Jónsson háseti, Reykjavík 29 ára,
Jón Ólafsson háseti, Keflavík, 39 ára,
Kristján Halldórsson háseti, Innri-Njarðvík, 37 ára,
Magnús Jónsson háseti, Reykjavík, 23 ára,
Benedikt R. Sigurðsson kyndari, Reykjavík, 19 ára,
Hilmar Jóhannesson kyndari, Reykjavík, 19 ára,
Kristján Kristinsson aðstoðarmatsveinn, Reykjavík, 14 ára.

Minningarathöfnin fór fram í Dómkirkjunni þann 3. febrúar 1944.

Pétur Maack skipstjóri (Heimild: Fálkinn 21.01.1944)
 Þorsteinn Þórðarson, 1. vélstjóri (Heimild: Fálkinn 21.01.1944)
(Heimild: Fálkinn 21.01.1944)
(Heimild: Fálkinn 21.01.1944)

Viðbótar heimildir og upplýsingar; 12.11.2020

Þýskur kafbátur?

Að Max Pemberton hafi farist á Faxaflóa af völdum þýsks kafbáts er svo ekki ósennilegt miðað við þennan tíma. Síðast heyrðist frá áhöfninni á hinum „venjulega“ sambandstíma togaranna um morgunin þann 11. janúar (1944) klukkan 07:30 (Þriðjudagur). Samkvæmt þeim upplýsingum/heimildum þá var Max Pamberton út af Malarrifi á leið til Reykjavíkur (#1 „Lónum innan við Malarrif“) (#2 „Lónaði innan við Malarrif“). Síðan heyrðist ekkert meir frá áhöfninni á næsta kalltíma. Gera má ráð fyrir að þessu að skipið hafi verið komið suður fyrir Malarrif.

Veður?

Veðurskilyrði á þeim tíma, tíma hvarfsins hafði breytt um átt og komin norð-austan kaldi og fjögur vindstig (kaldi = 4 vindstig, sem telst ekki mjög mikið). Miðað við vindátt og vindstig á þessum stað, Faxaflóa og þá líka miðað við heimildir á umræddum tíma var sjór nokkuð sléttur á Faxaflóa. Sama má segja um norðanverðan Faxaflóa, nema smávægileg bára á sunnanverðum Flóanum.

Því er talið útilokað að Max Pemberton hafi farist sökum veðurs.

Ketilsprenging?

Önnur hugmynd kom upp að ketilsprenging hafi orsakað hvarfið, en það var talið útilokað líka. Þar sem vaktaskipti vélstjóra hafi verið um klukkan 06:00 og þar hafði verið að störfum vanur vélstjóri og kyndari.

Tundurdulf ?

Í lok seinni heimstyrjaldinnar tilkynntu Þjóðverjar um að kafbátar Nasista hefðu lagt 2 tundurduflasvæði. Annað svæðið hafði verið sunnan Kolluál, en hitt fyrir norðan Kolluál.

Sjóskipið Max Pemberton

Sagt var að skipið hafi verið afar gott sjóskip og skipstjórinn Pétur maack hafi verið í flokki afburða skipstjóra. Skipinu hafði verið breytt og lestin verið stækkuð. Í stríðinu hafði verið sett brynvörn á brúna, 1150 kg að þyngd, og á móti bætt við 14 tonnum í botninn. Þetta hafði gert það að verkum að skipið varð enn betra sjóskip.

Það var smíðað árið 1917 og því 26 ára gamalt þegar hann hvarf. Skipið var upphaflega 320 lestir. Aðaleigandi skipsins var Halldór Þorsteinsson skipstjóri í Reykjavík.

Max Pemberton (Heimild; Morgunblaðið 1984)

Leitin

Leit var hafin á fimmtudeginum og fram til laugardags. Leitað var úr lofti að skipinu, eða braki úr því en án árangurs. Annað hvort hefur skipið farist mjög hratt eða það horfið á slóðum utan leitarsvæðis.

Fréttagrein í Vísi 14. janúar 1944, leitin að Max Pemberton.

Skipsflakið Max Pemberton

Hvar flakið af Max Pemberton er að finna veit enginn. Að minnsta kosti ekki að svo stöddu.

Hafdýpið á þeim slóðum sem talið er að flakið hafi farist er á bilinu 100 til 250 (300) metra dýpi? Hvort sjómenn hafi „lent“ í festum á þessum slóðum er alls ekki ólíklegt, en amk. eru ekki komnar neinar heimildir eða upplýsingar um að einhver hafi fengið „festu“ í Max Pemberton.

Veistu eitthvað meira?… Geturðu bætt við upplýsingum? Hafðu þá samband við mig, höfum söguna á hreinu; sendu mér tölvupóst á diveexplorer@dive-explorer.com

If you have any information’s about the trawler Max Pemberton, some data, info, or anything you want to share please contact me; diveexplorer@dive-explorer.com.

_______________________________________________

Heimildir & Linkar

5 athugasemdir við “Max Pemberton RE-278 (+1944)”

  1. Ég veit heil mikið.Maxinn for frá Ísafirði um miðnætti.Ofhlaðinn.Jens broðir minn ár í sinni fyrstu ferð sem stýrimaður.Ef sagði frá þessu áður.Ef hann hefði verið sprengdur hefði eitthvað fundist.Það fannst björgunarbelti,sem ekki var hægt að staðfesta.Um hádegi var farið að kalla á hann ég lag við útvarpið,því Pabbi gamall sjómaður sagði við Pétur ertu brjálaður þú ert of hlaðinn.Enn sá gamli hlo og Jens líka.Við fjórum heim sorgmædd og ég lá við útvarpið.Heyrði þá kalla á Maxine og hljóp til mömmu nú eru þeir farnir.Heyrðist ekkert meit.Kom í fréttum að þeir hefðu farið frá Patro,sem var vitleysa.Man þetta eins og það hefði gerst í dag.þetta var mikil dorgarar hjá okkur og konunni hans.Sem jafnaði sig aldei.

    Líkað af 1 einstaklingur

    1. Já það er oft svona. Sérstaklega þegar skipsskaðar, og skipshvörf eiga sér stað. Þá fer allskyns orðrómur af stað. Þegar engin vitni, og þegar enginn kemst lífs af þá fara sögur af stað. Að finna flakið, rannsaka þá er reynist oft hægt að svara sumum spurningum.

      Líkar við

    2. Já það er oft svona. Sérstaklega þegar skipsskaðar, og skipshvörf eiga sér stað. Þá fer allskyns orðrómur af stað. Þegar engin vitni, og þegar enginn kemst lífs af þá fara sögur af stað. Að finna flakið, rannsaka þá er reynist oft hægt að svara sumum spurningum.

      Líkar við

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s