Oftar en ekki er ákveðin dulúð yfir skipsflökum. Jafnvel enn frekar hvað það varð til þess að skipin höfnuðu á sjávarbotni. Sumum spurningum kann að vera svarað, við öðrum alls ekki. Mörg skipsflök eiga enn eftir að finnast.
Til dæmis hvað varðar orsök þess að íslenska flutningaskipið M/S Suðurland sökk 290 sjómílur austur af Langanesi á jólanótt 1986 er óljóst. Að minnsta kosti er sögur á kreiki um ýmsar ástæður.
Nokkrar bækur og greinar hafa verið skrifaðar um þennan atburð. Þá var gerð heimildarmyndin, Höggið, um slysið.
Skýrsla sjóslysanefndar segja til að frágangi farms hafi verið ábótavant. Aðrir vilja meina að kafbátur hafi valdið slysinu.

M/S Suðurland
M/S Suðurland var flutningaskip í eigu Nesskipa. Það var á leið til Murmansk, í Sovétríkjunum. Aðalfarmur skipsins voru 19.000 tunnur fullar af saltsíld.

Neyðarkallið; M/S Suðurland sekkur
Á aðfangadag við vaktaskiptin, eftir kvöldmat, um klukkan 20:00 var orðinn talsverður veltingur, suðaustan 8 vindstig, þannig að sjór fór að flæða yfir bakka og lúgur.
Þegar skipið var statt um miðja vegu milli Íslands og Noregs, eða tæpar 300 sjómílur ANA af Langanesi klukkan 23:00 kom „höggið“.
Vill áhöfnin meina það að þetta högg hafi ekki verið neitt eðlilegt högg.
Skipið hallaði mjög, og sjór fór að flæða mjög hratt inn. Sökk skipið það hratt að skipverjar gáfust lítill tími til að klæðast hlífðarfötum, eða ráðrúm til að undirbúa sig á nokkurn hátt.
Klukkan 23:17 barst Slysavarnarfélagi Íslands í Reykjavík neyðarkall frá Suðurlandinu.

Sex manns fórust – fimm lifðu af
Tveimur gúmmíbátum var varpað í sjóinn, en annar þeirra hvarf strax út í myrkrið, hinn laskaðist nokkuð, varð hálffullur af sjó en hélst á floti.
Í áhöfn M/S Suðurland voru 11 manns. 6 fórust, 5 komumst lífs af, en þeim var bjargað af þyrluáhöfn danska varðskipsins Vædderen. Voru þeir þá búnir að hafast við í lekum og rifnum björgunarbát í tæpan hálfan sólarhring. Þeir gátu ekki setið í bátnum heldur þurftu að standa í einum hnapp. Þrír dóu um borð í björgunarbátnum.
Skipsflakið M/S Suðurland
Eftir því sem best er vitað þá er flakið af M/S Suðurland ófundið. Mögulega ekki hafi verið svo sem leitað af því þrátt fyrir vilja ýmissa aðila, og að slíkt gæti mögulega varpað ljósi á atburði þá sem varð til þess að skipið sökk. Talið er að skipið liggi á 2 km dýpi, 300 sjómílur ANA frá Langanesi, á miðja vegur milli Íslands og Noregs.

Heimildir og greinar – linkar
- Mannlíf – sex fórust með m/s Suðurlandinu – 14.desember 2021
- Vísir – 16. janúar 2015 – Vilja vita hvað raunverulega gekk á
- Morgunblaðið 25. júní 2006 – Sagan leiðrétt
- Morgunblaðið – 28 desember 1986 – Timarit.is
- Höggið – kvikmyndir.is
Hefurðu frekari upplýsingar? Geturðu hjálpað til við að koma upplýsingum á framfæri. Hafðu samband, skrifaðu póst hér á síðuna eða sendu mér tölvupóst; diveexplorer@dive-explorer.com