Talisman EA 23 var þilskip (Kútter) ætlaður til fiskveiða og flutnings, m.a. á fiskiafurðum.
Talisman lagði frá Akureyri 18.-19. mars 1922, og var ferðinni heitið til Vestmannaeyja með 200 tunnur af beitisíld. Frá Akureyri fór skipið til Siglufjarðar.
Talisman strandar við Súgandafjörð
Talisman fór frá Siglufirði fimmtudaginn 23 mars. kl. 21:30 og hreppti stórhríð um miðjan dag. í Húnaflóanum fékk það áfall; brotnaði þá ofan af káetunni og hana fyllti að sjó. Skipið hélt síðan áfram vestur fyrir land. Um laugardagsnótt sáu skipverjar vita og álitu það vera Straumnesvita.
Beygðu þeir þá að landi og ætluðu að hleypa inn á Ísafjarðardjúp. En vitinn, sem þeir sáu var ekki, á Straumnesi heldur vestan megin Súgandafjarðar og af þessum orsökum sigldu þeir til skipbrots upp á Sauðanes, milli Súgandafjarðar og Önundarfjarðar, Súgandafjarðarmegin.
Þar gekk óbrotinn sjór á land. Skipið brotnaði þegar allmikið og gerðu sjö af skipverjunum tilraun að komast á stórsiglunni til lands. 4 af þeim komust lífs af, og heilir á húfi en 3 fórust. Þeir 9 sem eftir voru á skipsfjöl fórust allir, því skipið brotnaði mjög fljótt.
Alls fórust því 12 menn en fjórir komust af.


Um þilskipið Talisman
Talisman (þýðing; „verndargripur“) var þilskip (kútter), 40 til 50 smálesta (46 rúmlesta) fiskiskip. Smíðaður í Englandi 1876. Keyptur frá bretlandi um aldamótin (1900). Talismann var eign Ásgeirs Péturssonar, (keyptur 1917) útgerðarmanns á Akureyri. Hafði Ásgeir endurbætt skipið eftir að það hafi komið í hans eigu, meðal annars bætt við hjálparvél, 40 hestafla Hein-vél.
Rætt var um það á þeim tíma að skipið hafi verið gott sjóskip, og ætið aflasælt.

Þeir fjórir sem lifðu af strandið
- Einar Guðbjartsson, Grenivík (Hann komst til Kálfeyrar eftir strandið)
- Jakob Einarsson, Akureyri (Viðtal í Vísi 23.12.1966)
- Jóhann Sigvaldason, Hörgárdal
- Arinbjörn Árnason úr Möðruvallasókn, háseti
Þeir sem fórust í sjóslysinu
Nöfn þeirra sem fórust í sjóslysinu, alls 12 manns. En lík þeirra allra fundust, á víð og dreifð um kletta og sker. Sumir þeirra höfðu drukknað, aðrir fórust úr vosbúð og kulda.
- Mikael Guðmundsson (f.1886-d.1922), Skipstjóri Talisman, frá Hrísey, búsettur á Akureyri.
- Þorsteinn Jónsson, Grímsnesi, 2. stýrimaður
- Stefán Arngrímsson, Akureyri, vélarstjóri
- Stefán Jóhansson, Nunnuhóli í Möðruvallarsókn, matreiðslusveinn
- Sigurður Þorkellsson, Siglufirði
- Jóhannes Jóhannesson, Kúgili í Þorvaldsdal
- Benedikt Jónsson, Akureyri (líkið af honum fannst fyrst)
- Sæmundur Friðriksson, Glerárþorpi
- Ásgeir Sigurðsson (fóstursonur skipseiganda)
- Sigtryggur Davíðsson, Dalvík
- Bjarni Emilsson, Hjalteyri
- Gunnar Vigfússon, Siglufirði

Strandstaðurinn og flakið af Talisman
Vantar upplýsingar!
Hefurðu frekari upplýsingar um þennan atburð? Hefurðu upplýsingar um strandstað Talisman eða eitthvað um flakið? Hafðu samband við mig, sendu mér tölvupóst; diveexplorer@dive-ecxplorer.com, eða skrifaðu hér á síðuna.
Upplýsingar, tenglar og heimildir: