Félagarnir fjárfestu í notuðum bát, harðbotna Zodiac Pro, 6.5 m með Suzuki utanborðsmótor.
Fór hluti sumarsins í að gera við og uppfæra þá hluti sem þurfti til að gera hann að góðum sjóbát.








Var skrokkurinn spasslaður og málaður upp á nýtt, skipt var um gamla belginn og nýr settur á. Mótor skoðaður, yfirfarinn og lækkaður. Rafkerfið var yfirfarið og hreinsað upp.
Verkið er ekki að öllu lokið, en báturinn er orðinn nokkuð góður á sjó, og siglir vel.



Skildu eftir svar